Upplestrarhátíð Kirkjubæjarskóla var haldin miðvikudaginn 15. febrúar í matsal Kirkjubæjarskóla. Þar komu saman nemendur 5. - 7. bekkjar og lása upp fyrir gesti. Stóðu þau sig öll með mikilli prýði. Einnig voru valdir tveir fulltrúar úr 7. bekk sem fara fyrir hönd skólans á Stóru upplestrarkeppnina. Valið var auðvelt því það eru bara tveir nemendur í 7. bekk. Elsa Líf og Guðdís Hera fara sem fulltrúar Kirkjubæjarskóla til Víkur í Mýrdal 7. mars. En þar koma saman krakkar úr 7. bekkjum í Vestur-Skaftafellssýslu og Rangarvallasýsum.
Dómarar í Upplestrarhátíð Kirkjubæjarskóla voru Birgir Þórisson, Hjalti Júlíusson og Þórunn Júlíusdóttir. Við þökkum þeim fyrir vel þeirra mikilvæga þátt.
Myndir frá hátíðinni er að finna hér.
