Félagsmiðstöðin Klaustrið

Félagsmiðstöðin Klaustrið

 

Félagsmiðstöðin Klaustrið er vettvangur fyrir félagslíf, samveru og skemmtun fyrir nemendur í 5.-10. bekk. Félagsmiðstöðin er opin tvisvar í viku, á þriðjudögum fyrir 5.-7. bekk og fimmtudögum fyrir 8.-10. bekk.

Markmið félagsmiðstöðvarinnar er að skapa notalegt og öruggt umhverfi þar sem nemendur geta átt ánægjulegar stundir saman, eflt félagsleg tengsl og tekið þátt í fjölbreyttu tómstundastarfi.

Á hverju skólaári standa nemendur á elsta stigi fyrir fjáröflunum sem gengur upp í kostnað á ýmsum viðburðum, ferðum og skemmtunum utan heimabyggðar. Með því er leitast við að tryggja að sem flestir geti tekið þátt í félagsstarfinu án þess að kostnaður falli á nemendur eða foreldra þeirra.

Í félagsmiðstöðinni er fjölbreytt aðstaða til afþreyingar og samveru. Þar hafa nemendur meðal annars aðgang að sjónvarpi, tölvu, þithokki, píluspjaldi og fleiru.

Klaustrið er staður þar sem gleði, samvera og góðar minningar eru í fyrirrúmi !

 

Umsjónarmaður: Soffía Anna Helga Herbertsdóttir

Sími: 8573264