Reglur um skólahald í Skaftárhreppi þegar óveður geisar

Reglur um skólahald í Skaftárhreppi þegar óveður geisar

Óveður – skólahald fellt niður:
Þegar appelsínugular eða rauðar viðvaranir Veðurstofu Íslands eru í gildi hefur skólastjóri heimild, að fella niður skólastarf (grunn- og leikskóla deildir í Skaftárhreppi). Sé það gert þarf að tryggja að hægt verði að opna skóla fyrir börn neyðaraðila ef brýn nauðsyn krefur og er það þá á ábyrgð foreldra að tilkynna komu barnanna.

Skólastjórnandi, í samráði við sveitastjóra, meta þá hvort nauðsynlegt sé að opna deildirnar fyrir þessi börn.
Ef skólahald er fellt niður er slíkt auglýst á vefsíðu deildanna, svo og í tölvupósti til foreldra, og eigi síðar en kl. 7:30 að morgni dags.
Ef skólahald fellur niður um lengri tíma vegna veðurs eru kennarar tilbúnir með verkefni eða námsáætlun, þannig að nemendur dragist ekki aftur úr í námi. Þessi verkefni geta verið með ýmsum hætti. Foreldrar/nemendur geta verið í tölvu- eða símasamskipum við kennara varðandi námið.

Ábyrgð foreldra:
Þegar gular viðvaranir eru í gildi hjá Veðurstofu Íslands skulu foreldrar ávallt að meta sjálfir hvort óhætt sé að senda barn í skóla. Í slíkum aðstæðum er alltaf einhver hluti starfsmanna mættur í skólann til að taka á móti þeim börnum sem mæta.
Foreldrar skulu meta hvort barn hafi sjálft getu til að komast frá grunnskóla í lok dags, eða hvort foreldri þurfi að sækja barn í grunnskóla/Frístu

Þegar appelsínugular eða rauðar viðvaranir eru í gildi hjá Veðurstofu Íslands þá gilda þau eindregnu tilmæli að foreldrar fylgi yngri börnum til skóla eða að stoppistöð skólabíls og yfirgefi þau ekki fyrr en þau eru í öruggum höndum starfsfólks.
Sé barn heima vegna veðurs eða ófærðar, þegar skóla hefur ekki verið aflýst, skal forráðamaður tilkynna það í síma, tölvupósti eða á Mentor/Karellen. Aðstæður fólks til að koma börnum á milli heimils og skóla eru ólíkar og er tekið tillit til þess. Tilvik sem þessi eru eðlileg forföll og eru skráð sem slík.