Ævintýraskógurinn :)

 

Nemendur Kirkjubæjarskóla taka virkan þátt í verkefni á vegum Vatnajökulsþjóðgarðs  og Skógræktar  sem felst í því að búa til ævintýraskóg í Þjóðskóginum á Kirkjubæjarklaustri.  

Nemendur yngsta stigs  fóru í morgun með vasaljós og fóru um Ævintýraskóginn með kennurum sínum þeim Herdísi og Mæju auk Sæunnar stuðningsfullrúa.  Fengum senda eftirfarandi  frétt frá Mæju:

,,Við tókum hringinn í skóginum um ævintýraskóginn stoppuðum við tréð sem 1.og 2.bekkur skreyttu og skoðuðum það, héldum síðan áfram í nýja skógarkofann og þar fundum við óvæntan glaðning :)    (  úúú spennandi :))

Því næst fórum við að trénu sem 3.og 4.bekkur skreyttu og fundum söngtexta í kassanum góða og var lagið tekið.  (sjá myndband.)

Að lokum rákumst við á sjálfa Grýlu og var hún kominn með pottinn sinn að fossinum. Við teljum okkur heppin að hafa öll komist aftur heil á húfi í skólann."    

Og mikið erum við heppin að hafa fengið ykkur öll heil á húfi :) 

Kærar þakkir fyrir frásögnina og myndbandið !

Hér er hlekkur á myndbandið