Árshátíð Kirkjubæjarskóla

Kæru foreldrar og forráðamenn.

Árshátíð Kirkjubæjarskóla verður haldin föstudaginn 13. mars í félagsheimilinu Kirkjuhvol klukkan 13:00. Þema árshátíðarinnar er íslenskar þjóðsögur og ævintýri og atriði eru unnin af nemendum við leik- og grunnskóla. Aðgangseyrir á árshátíð er 1000.- krónur fyrir fullorðna en frítt fyrir 16 ára og yngri, ágóðinn rennur í viðburði nemenda. Ekki verður hægt að taka við kortum. Að árshátíð lokinni verður hátíðarkaffi í matsal grunnskólans.

Skóli hefst kl:09:30 á árshátíðardaginn og þurfa nemendur ekki að koma með skólatöskur með sér. Morgunhressing fellur niður þar sem við flýtum hádegismat. Skólabílar munu keyra í samræmi við mætingu í skólann þennan dag og viljum við biðja ykkur að láta bílstjóra vita hvort þið hyggist nýta skólabílinn heim þennan dag.

Við hlökkum til að sjá sem flesta
Allir velkomnir, mömmur og pabbar, ömmur og afar, systkini, frænkur, frændur, vinir og velunnarar.

Með bestu kveðjum
Starfsfólk Kirkjubæjarskóla.