Ef veikindi gera vart við sig - ráðleggingar Landlæknis

Ef veikindi gera vart við sig.

Stefna Kirkjubæjarskóla er að fylgja ráðleggingum Landslæknis læknis og hvetjum við foreldra/forráðamenn að gera slíkt hið sama. Landlæknir kveður áfram um að ef einkenni covid-19 verði vart um sig sé rétt að halda sig heima og fara strax í skimun. Þetta á bæði við um börn og fullorðna.

Hér má sjá upptalningu frá Landlækni  um hver eru rétt viðbrögð og hvernig má forðast covid-19

Bestu kveðjur

Skólastjóri

 

Einkenni COVID-19

Einkennin geta virst lítil, en mikilvægt er að fara strax í sýnatöku hversu lítilvæg sem einkennin eru.

Helstu einkenni COVID-19

Hósti

Hiti

Hálssærindi

Kvefeinkenni

Andþyngsli

Bein- og vöðvaverkir

Þreyta

Kviðverkir, niðurgangur, uppköst

Skyndilegt tap á lyktar- og bragðskyni

Höfuðverkur

Farðu í sýnatöku ef þú ert með einkenni eða þig grunar að þú sért með smit, þó þú sért bólusett/ur

Haltu þig heima og skráðu þig strax í sýnatöku á Mínar síður á Heilsuveru. Ef þú ert ekki með rafræn skilríki, þá er hægt að hafa samband í síma við heilsugæsluna þína, Læknavaktina 1700 eða á netspjalli Heilsuveru. Það er mikilvægt að fylgja leiðbeiningum um einangrun þar til neikvæð niðurstaða úr sýnatöku berst. Það má alls ekki fara í eigin persónu á heilsugæslustöð, Bráðamóttöku LSH eða Læknavaktina ef þú ert með einkenni nema hringja fyrst og fá ráð.

Einkennasýnataka er alltaf ókeypis, líka fyrir ferðamenn.

Ef þig grunar að einhver í þínu nærumhverfi sé smitaður/smituð

Gættu þess að eiga ekki í nánu samneyti við viðkomandi. Ráðlegðu viðkomandi að fara í sýnatöku og einangra sig þar til neikvæð niðurstaða fæst.

Þú getur varið þig og aðra gegn smiti með því að fylgja þessum ráðum

Þvoðu hendur í minnst 20 sek í hvert skipti með vatni og sápu.

Sprittaðu hendur með handspritti reglulega og sérstaklega ef þú hefur komið við fleti sem margir snerta.

Forðastu að snerta andlitið, sérstaklega augu, nef og munn.

Ef þú þarft að hósta eða hnerra skaltu nota olnbogabótina eða einnota klúta/pappír. Þannig kemurðu í veg fyrir að úði fari á hendur. Gættu þess að hósta eða hnerra ekki á aðra.

Takmarkaðu náin samskipti við annað fólk, t.d. handabönd og faðmlög.

Notaðu grímu þar sem ekki er hægt að virða nándarmörk. Grímur eru mikilvæg viðbót við einstaklingsbundnar sóttvarnir en koma ekki í stað handþvottar og annara sóttvarna. Rakar og skítugar grímur gera ekkert gagn.

Forðastu að umgangast fólk sem er með einkenni sjúkdóms.

Þrífðu oftar algenga snertifleti, og/eða sprittaðu þig eftir snertingu þeirra, svo sem:

Handrið og hurðarhúna

Afgreiðsluborð og greiðslukortaposa

Sameiginlegar kaffivélar og aðstöðu á kaffistofunni

                                                                                                Textinn er tekinn beint frá covid.is