Álfheimar í Austur- Síðu og í Fljótshverfi
Það voru glaðir og hreyknir nemendur sem tóku á móti gestum á opnu húsi KBS s.l. föstudag.
Afrakstur vinnu þeirra sýndi enn einu sinni hversu hugmyndaríkir nemendur eru og listrænir. Keldnúpsfílf ljóslifandi tók á móti gestum við myndmenntastofu, lengsti trefill í Skaftárhreppi myndaði þjóðveg 1 í gegnum Síðuna og Fljóthverfi, líkan af kirkjugólfi og Dverghömrum auk þjóðsagna í máli og myndum, Álfheimar, Óskasteinn og Regnbogland, allt gert af af meistarans höndum
Bestu þakkir nemendur, kennarar og starfsfólk fyrir vel heppnaðan dag !
Gestum þökkum við fyrir komuna og velvilja til skólans !

