Hinn alþjóðlegi netöryggisdagur - SAFT/Heimili og skóli

Tryggjum öryggi barna á veraldarvefnum
Tryggjum öryggi barna á veraldarvefnum

Við viljum vekja athygli á að í dag, 9. febrúar, er hin árlegi alþjóðlegi netöryggisdagur. Við hjá SAFT og Heimili og skóla ætlum að halda upp á daginn með rafrænni ráðstefnu sem hægt er að horfa á þegar fólki hentar. Við munum bjóða upp á fjölda erinda um ýmis atriði tengdum netnotkun barna og ungmenna á netinu í samstarfi við Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar. 

Hér fyrir neðan eru tímasetningar hvenær erindin verða frumsýnd á Facebook síðu SAFT (https://www.facebook.com/saft.iceland). Öll erindin eru tekin upp fyrir fram þannig fólk getur horft á upptökurnar hvenær sem er en þau verða aðgengileg á Youtube síðu SAFT (https://www.youtube.com/saftinsafe)  

Facebookviðburður Netöryggsdagsins má nálgast hér: https://fb.me/e/IUSG6siR 

Einnig mun  Lalli töframaður með gagnvirkt erindi á netinu um stafræna borgaravitund fyrir 150 nemendur á unglingastigi í tveimur grunnskólum á landinu í tilefni dagsins. Fræðsluerindi Lalla töframanns verður svo kynnt betur grunnskólum landsins á næstu dögum. 

 

Dagskrá (Með fyrirvara um breytingar): 

10:00 Nýtt kynningarmyndband frá UngSAFT (Ungmennaráði SAFT) frumsýnt. 

11:00 Fjóla Þorvaldsdóttir, verkefnastjóri hjá skóla- og frístundasviði Reykjavíkur fjallar um netnotkun leikskólabarna 

12:00 Teitur Skúlason lögfræðingur hjá skóla- og frístundasviði Reykjavíkur fjallar um persónuvernd í skólastarfi 

 

13:00 Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir, skólastýra Jafnréttisskóla SFS, fjallar um foreldrabréf um nýja birtingamynd kynferðisofbeldis sem sent var út um daginn 

14:00 Anna Elísa Hreiðarsdóttir, lektor í leikskólakennarafræðum HA, kynnir niðurstöður rannsóknar á netnotkun leikskólabarna 

15:00 Þóra Jónsdóttir frá Barnaheillum fjallar um ábendingalínu Barnaheilla þar sem hægt er að tilkynna óviðeigandi og ólöglegt efni á netinu 

16:00 Salvör Gissurardóttir, lektor við Menntavísindasviði HÍ fjallar um efni tengt Wikipedia út frá nauðsyn á áreiðanlegum upplýsingum, aðgengi að opnu menntaefni, myndum og efni án höfundarréttartakmarkana 

 

17:00 Verkefnastjórar SAFT og Heimili og skóli kynna niðurstöður úr foreldra- og nemendakönnun um stafræna borgaravitund. 

 

 

Kær netöryggiskveðja kveðja 

SAFT Teymið