
Innritun barna fædd árið 2013 í Kirkjubæjarskóla á Síðu skólaárið 2019-2020
Innritun nýrra nemenda í Kirkjubæjarskóla á Síðu fer fram 3.- 10.júní n.k. Foreldrar/forráðamenn barna sem fædd eru 2013 og búsett eru í sveitarfélaginu eða hyggja á flutning í Skaftárhrepp eru beðnir um að senda upplýsingar um nafn barns og foreldra, kennitölur, auk lögheimilisfangs, síma og netfangi á til skólastjóra á netfangið : skolastjori@klaustur.is.
Í framhaldi verður haft samband við foreldra/forráðamenn og þeir boðaðir á fund skólastjóra, sem skráir þá niður helstu upplýsingar um nemandann.
Kirkjubæjarklaustur 31.maí 2019
Skólastjóri