Ólympíuhlaup ÍSÍ

A logo with people in different colors

Description automatically generated

Ólympíuhlaup ÍSÍ – frábær árangur hjá nemendum!

 

Í gær tóku nemendur skólans þátt í Ólympíuhlaupi ÍSÍ og stóðu sig frábærlega! Nemendur lögðu sig alla fram og sýndu mikinn dugnað og þrautseigju í hlaupinu.

Hver og einn hljóp eftir sinni getu og saman náðum við glæsilegum árangri. Samtals hlupum við 272,5 km – sem er besti árangur skólans hingað til!

Til gamans má geta þess að ef við leggjum þessa vegalengd saman á korti, þá værum við komin næstum alla leið til Mosfellsbæjar! 🏃‍♀️🏃‍♂️

Við erum virkilega stolt af nemendum okkar og óskum þeim öllum til hamingju með frábæran árangur!

Guðmundur Vignir (Grillskálinn) styrkti hlaupið og bauð öllum þátttakendum upp á drykkjarvatn. Við færum honum kærar þakkir fyrir stuðninginn! 💧👏