Opið hús í Kirkjubæjarskóla

Í tenglsu við uppskeruhátíðina verður opið hús í Kirkjubæjarskóla föstududaginn 2. nóvember frá kukkan 10:00 - 14:00

Gestir fá innsýn í daglegt starf nemenda með kennurum sínum. 

Til sýnis verða verk nemenda í 1. - 7. bekk í sjónlist og einnig verk nemenda í textíl.

Nemendur í 5. - 7.  bekk verða með kynningu á verkefni sínu Aldirnar klukkan 10.20 og 13.05 í sofunni Hrútafjöll.

Boðið verður upp á kaffi og djús á meðan á opnu húsi stendur og einnig upp á heita súpu frá klukkan 11:00.

7. bekkur verður í heimilisfræði klukkan 11:05 - 12:25 og mun þar bjóða gestum upp á vöfflur.

Vakin er athygli á því að Héraðsbókasafnið verður opið gestum og gangandi frá 10:00 -14:00

Allir velkomnir !!!