Öskudagsball !

 

LOKSINS  LOKSINS

 

Nú þegar öllum takmörkunum hefur verið aflétt getur skólafélagið LOKSINS boðið til skemmtunar.

Á öskudag er börnum, leik- og grunnskóla,  og foreldrum þeirra boðið á öskudagsball sem haldið verður í matsal skólans frá kl. 19.30- 21.00.

Frítt er inn fyrir börn en foreldrar greiða kr. 500 ef þeir koma í búning, annars kr. 1.000,-

Sjoppa verður á staðnum.

Skólabílar keyra á ballið og heim svo vinsamlegast látið bílstjóra vita ef þið viljið ekki nýta akstur.

 

 

Hlökkum til að sjá ykkur !

Stjórn skólafélagsins Asks