Öskudagur 18. febrúar

 

Kæru foreldrar og forráðamenn.

Senn lýður að Öskudegi þann 18. febrúar með öllu sínu fjöri. Fyrirhugað skipulag er með eftirfarandi hætti og vil ég taka það fram að þetta er skertur nemendadagur sem þýðir að nemendur ljúka skóladeginum kl:12:30.

Nemendur geta farið af stað í nammi leiðangur kl: 12:30 til þess að ganga í hús og fyrirtæki hér á Klaustri. Við viljum benda á að yngstu nemendurnir 1-4. bekkur þurfa að vera með fullorðin með sér á göngunni. Foreldrar get t.d. sameinast um að vera með fleiri en eitt barn með sér ef einhver á ekki gott með að komast frá á þessum tíma. Öskudagsball sem Nemandafélagið Askur stendur fyrir hefst svo í matsal skólans kl: 15:00 og stendur til 16:30. Foreldrar og forráðamenn fylgja sýnum börnum á ballið. Skólabíllinn mun ekki keyra nema eina ferð og er hún kl.16:30. Ef þið munið ekki nota skólabílinn þennan dag vil ég biðja ykkur um að láta mig vita seinast lagi á mánudag.

Kær Öskudag kveðja

Stjórnendur Kirkjubæjaskóla