Á föstudaginn ríkti mikil tilhlökkun á miðstigi skólans þegar nemendur buðu foreldrum sínum á sérstakan foreldramorgun. Tilefnið var glæsileg kynning á verkefnum sem krakkarnir höfðu unnið að undanfarnar vikur. Þema verkefnisins var sólkerfinu okkar.
Nemendurnir voru með mjög góða kynning. Það var gaman að sjá hversu mikla þekkingu þau höfðu tileinkað sér um pláneturnar. Mætingin var mjög góð og fjölmargir foreldrar mættu til að hvetja börnin sín og kynna sér vinnu þeirra.
Að loknum kynningum var boðið upp á skemmtilegt pálínuboð. Foreldrar komu með dýrindis veitingar sem allir gæddu sér á í sameiningu. Þessi stund var ekki aðeins fræðandi heldur einnig einstaklega notaleg. Dagurinn tókst í alla staði vonum framar og voru bæði nemendur og starfsfólk afar stolt af útkomunni. Við þökkum kærlega fyrir frábæra samveru og góðar veitingar.