Skólasetning Kirkjubæjarskóla miðvikudaginn 22. ágúst 2018 kl. 10:00.


Dagurinn verður með þeim hætti að byrjað verður á stuttri athöfn í matsal Kirkjubæjarskóla.

Síðan fara nemendur með umsjónarkennurum í stofur og verða þar til hádegis.  

Nemendum verður síðan boðið upp á grillaðar pylsur og safa  kl. 12:25. 

Deginum lýkur síðan á leikjastund nemenda og kennara undir stjórn  Katarzyna Korolczuk íþróttakennara. 

Skólaakstur er um morguninn og þegar skóla lýkur kl. 14:00.

                              

Að venju mun skólinn útvega nemendum ritföng, stíla- og reiknisbækur auk glósubóka. 

Heimili þurfa að útvega:

 PENNAVESKI, SKÓLATÖSKU, ÍÞRÓTTAFATNAÐ (SKÓR NAUÐSYNLEGIR), SUNDFATNAÐ OG VASAREIKNI FYRIR NEMENDUR 8.-10.BEKKJAR

Ath. foreldrar sem eiga eftir að skrá börn í skólann eru beðnir um að gera það sem allra fyrst.

Hægt er að gera það með því að senda póst á skolastjori@klaustur.is