Einn liður í náms- og starfsvali og vettvangsnámi nemenda er að þekkja til starfa í nærumhverfinu. Í marsmánuði unnu nemendur í 1. – 10. bekk, ásamt foreldrum, lista yfir starfsheiti innan Skaftárhrepps. Starfsheitalistinn skartaði um 100 starfsheitum.
Í kjölfarið var ákveðið að halda Starfamessu hér í skólanum og fá einstaklinga til að kynna störf sín fyrir nemendum, um er að ræða 37 manns, úr hinum ýmsu starfsgreinum.
Margir þátttakendur komu með eitthvað sem tengdist starfinu og settu á borð til að nemendur gætu skoðað, smakkað og reynt.
Tveir þátttakendur, dýralæknir og rúningsmaður, voru ekki á staðnum og þeirra kynning fór fram með fjarfundabúnaði. Sá síðar nefndi sendi kynningarmyndbönd, sjá hér og hér. Eftir kynninguna bauð mötuneytið öllum þátttakendum upp á morgunmat með nemendum.
Kirkjubæjarskóli þakkar enn og aftur öllum þátttakendum fyrir framlag sitt sem er mjög mikilvægt fyrir tengsl skóla og nærumhverfis.
Hlýjar kveðjur og handfylli af þakklæti frá okkur öllum í Kirkjubæjarskóla.
Klausturvegur 4 | 880 Kirkjubæjarklaustur Sími á skrifstofu: 487 4633 Netfang: skoli@klaustur.is |
Skrifstofa skólans er opin mánudaga - föstudaga 8.15-12.25 |
Munið að sækja tímanlega um leyfi fyrir nemendur .