Í sumar var í boði sumarlestur á Héraðsbókasafninu.
Léttur leikur þar sem geit var í aðalhlutverki.
Lestarspretturinn kallast Gúndi geithafur og grasleitin mikla. Hann gekk út á að hjálpa geithafrinum í betri haga með því að lesa, fyrir hverjar 15 mínútur af lestri var litaður hluti leiðarinnar inni í vegabréfinu. Þegar búið var að lesa í klukkustund var hægt að fara með vegabréfið á bókasafnið, fá stimpil og happamiða sem fór í pott.
Tilgangurinn með átakinu var að lestrarþjálfun hætti ekki yfir sumarmánuðina.
Átakið stóð yfir til 20. ágúst. Allir fengu límmiðaörk í þátttökuverðlaun. Svo voru dregnir úr happapottinum tveir vinningshafar, annars vegar úr þeim sem kláruðu alla leið og hins vegar úr öllum innskiluðum happamiðum. Meðfylgjandi er mynd af þátttakendum og bókaverði.
Tökum svo aftur upp þráðinn næsta sumar.