Tannverndarvika 1.-5. febrúar

Heil og sæl !

Að venju standa Embætti landlæknis og Tannlæknafélag Íslands fyrir tannverndarviku fyrstu vikuna í febrúar, 1.-5. feb. Áherslan að þessu sinni er á skaðsemi orkudrykkja bæði hvað varðar koffínmagn og eins áhrif þeirra á tennur en slíkir drykkir valda glerungseyðingu.

Neysla ungmenna á orkudrykkjum með koffíni hefur meira en tvöfaldast síðustu 2-3  ár. Mikil og tíð neysla sætra og sykurlausra orkudrykkja getur leyst upp ysta lag glerungsinns sem þynnist og eyðist og myndast ekki aftur. Tennurnar verða viðkvæmar fyrir kulda og meiri hætta er á að tannskemmdum. Glerungseyðing er vaxandi vandamál hjá börnum og ungmennum á Íslandi. Á heilsuvera.is má finna myndband um þetta efni Súrar tennur | Heilsuvera

Orkudrykkir innihalda koffín sem er miðtaugaörvandi og ávanabindandi efni. Börn og unglingar eru sérstaklega viðkvæm fyrir áhrifum þess. Orkudrykkir hafa verið markaðssettir sem heilsudrykkir en neysla á orkudrykkjum samhliða hreyfingu getur valdið hjartsláttartruflunum og aukið vökvatap líkamans ef þeirra er neytt í kjölfar íþróttaæfinga. 

Íslenska vatnið er besti svaladrykkurinn og óhætt að drekka vel af því. Í vatni eru engin örvandi efni og það er því ákjósanlegasti drykkurinn til að viðhalda vökvajafnvægi líkamans. Sýrustig vatns er svipað og munnvatnsins og því eyðir það ekki glerungi tannanna.

 

Drekkum vatn!

 

Bestu kveðjur, Auðbjörg B. Bjarnadóttir skólahjfr.