Upplestrarkeppni Röddin

Upplestrarkeppnin Röddin fór fram með miklum glæsibrag þriðjudaginn 14. apríl á Hótel Kötlu að Höfðabrekku. Keppnin er hvatninga verkefni fyrir grunnskóla í Vestur-Skaftafellssýslu, Rangárvallasýslu og Vestmannaeyjum. Það var sannarlega skemmtilegt að hlýða á ungu og hæfileikaríku lesarana sem komu þar fram.
Fyrir hönd Kirkjubæjarskóla kepptu þær Sóley Mist Baldursdóttir og Signý Heiða Þormarsdóttir. Þær stóðu sig báðar með mikilli prýði og voru skólanum til mikils sóma með öruggum og vönduðum upplestri. Allur sjöundi bekkur fylgdi þeim eftir á keppnina og sýndi stuðning í salnum.
Úrslit urðu þau að Caritas Rós Tinnudóttir úr Grunnskóla Vestmannaeyja hreppti fyrsta sætið. Hrafnkell Frosti Ómarsson úr Grunnskólanum á Hellu lenti í öðru sæti og Embla Bríet Einarsdóttir úr Hvolsskóla tryggði sér það þriðja. Við óskuðum öllum vinningshöfum innilega til hamingju með þeirra flotta árangur.
Þessi dagur var öllum mikil hvatning til að halda áfram að rækta lesturinn og njóta bókmennta. Við þökkuðum Víkurskóla kærlega fyrir frábæra keppni.