Verið velkomin á opið hús 20.okt. !

Kæru sveitungar og gestir !

Minnum á opið hús í Kirkjubæjarskóla á morgun, föstudag frá kl. 12.00-14.00- Allir hjartanlega velkomnir!

Gestum og gangandi er m.a.  boðið að bragða á veitingum, fá sér minjagripi, hlusta á jákvæðar fréttir og rifja upp gamlar minningar um Z-una góðu sem eitt sinn var hluti af stafrófi okkar  og  skreytti bílnúmeraplötur Skaftfellinga

Ekki er rukkaður aðgangseyri né innheimt sérstaklega fyrir veitingar og/eða minjagripi heldur eru gestir beðnir um að leggja fram frjálst framlag í sérstaka söfnunarbauka,sem verða staðsettir víðsvegar um skólann.   Sú fjárhæð sem safnast mun verða  afhent Krabbameinsfélagi V- Skaftafellssýslu til styrktar þeirra góða starfi.

Verið öll hjartanlega velkomin 😊

Nemendur og starfsfólk KBS