Við erum að bíða eftir þér !

Lausar stöður við Kirkjubæjarskóla!

Kirkjubæjarskóli á Síðu óskar eftir að ráða stuðningsfulltrúa.  Þarf að geta hafið störf sem fyrst.  Um er að ræða tvær 50% stöður eða eina 100% stöðu.  Stuðningsfulltrúi er kennara til aðstoðar við að sinna einum og/eða fleiri nemendum sem þurfa sérstaka aðstoð. Starfið miðar fyrst og fremst að því að auka færni og sjálfstæði nemenda, félags-og námslega sem og í daglegum athöfnum.

Einnig eru laus staða skólaliða, starfshlutfall 80-100% eða eftir samkomulagi.  Skólaliði tekur þátt í uppeldisstarfi og öðrum störfum innan skólans. Megin áhersla er lögð á velferð og vellíðan nemenda. Skólaliði  sér m.a. um að halda húsnæði og skólalóð hreinni.


Ráðið er í stöðurnar á ársgrundvelli, þ.e. starfstímabil nær yfir allt árið. 

Menntun og hæfniskröfur

  • Kostur að hafa lokið námi sem stuðningsfulltrúi/skólaliði
  • Hafa reynslu af störfum með börnum
  • Færni í samskiptum, lipurð, sveigjanleika og jákvæðni.
  • Flekklaus starfsferill og hreint sakavottorð

 

Launkjör fara eftir samningum Sambands ísl. sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Umsóknir skal senda á netfangið skolastjori@klaustur.is sem og fyrirspurnir um starfið.

Með umsókn skal fylgja ferilskrá, meðmælendur og sakavottorð.