Opinn skóli föstudaginn 3. nóvember

 

Nemendur og starfsfólk Kirkjubæjarskóla bjóða alla velkomna í skólann n.k. föstudag 3. nóvember frá kl. 10:00-14:00.  Til sýnis eru m.a. verk sem unnin hafa verið í vikunni undir þemanu Maður og náttúra.

Við kvetjum alla til að mæta og ekki verra ef afar og ömmur og önnur skyldmenni komi með.

Kaffi á könnunni og kannski eitthvað meira.

Kveðja

Nemendur og starfsfólk Kirkjubæjarskóla