Árshátíð Kirkjubæjarskóla á Síðu 2016

Fimmtudaginn 17. mars er árshátíð Kirkjubæjar-skóla á Síðu.  Hefst hún klukkan 14:00 í Kirkjuhvoli.  Þar koma fram nemendur Kærabæjar og Kirkjubæjarskóla og skemmta gestum með leik og söng.  Í ár sameinast skólarnir um eina sýningu.

Kardimommubærinn eftir Thorbjørn Egner.

Miðaverð er kr. 500.

Að sýningu lokinni er öllum boðið í Kirkjubæjar-skóla þar sem á boðstólum verður kaffi og meðlæti.  Einnig verður í skólanum skemmtun fyrir yngri kynslóðina.

Við hvetjum alla til að mæta á árshátíð skólanna og gleðjast með okkur öllum.