Fimmtudaginn 17. mars er árshátíð Kirkjubæjar-skóla á Síðu. Hefst hún klukkan 14:00 í Kirkjuhvoli. Þar koma fram nemendur Kærabæjar og Kirkjubæjarskóla og skemmta gestum með leik og söng. Í ár sameinast skólarnir um eina sýningu.
Kardimommubærinn eftir Thorbjørn Egner.
Miðaverð er kr. 500.
Að sýningu lokinni er öllum boðið í Kirkjubæjar-skóla þar sem á boðstólum verður kaffi og meðlæti. Einnig verður í skólanum skemmtun fyrir yngri kynslóðina.
Við hvetjum alla til að mæta á árshátíð skólanna og gleðjast með okkur öllum.