Fyrir stuttu síðan var tölvupóstur sendur öllum foreldrum/forráðamönnum varðandi lokun grunn-, framhalds- og háskóla til 1. apríl skv. ákvörðun stjórnvalda.
Mun því árshátíð Kirkjubæjarskóla frestast fram yfir páska. Nemendur voru rétt komnir í hús eftir generalprufu og átti að frumsýna á morgun með rafrænum hætti þegar fréttin barst. Nú ríður á að mannskapurinn missi ekki dampinn og þráðurinn verði tekinn upp að nýju strax eftir páska. Mögulega leynast tækifæri í þessari lokun s.s. að mögulegt verði að bjóða öllum bæjarbúum á ,,lifandi" sýningu. Lengi má vona :)
Við hvetjum alla, stóra sem smáa, að fara eftir fyrirmælum stjórnvalda varðandi sótt- og smitvarnir um leið og við óskum ykkur öllum gleðilegrar páskahátíðar.
f.h. starfsfólks Kirkjubæjarskóla
Katrín Gunnarsdóttir
skólastjóri