Ný reglugerð um takmörkun á skólahaldi

Í dag tók gildi ný reglugerð um takmörkun á skólahaldi. Gildir hún til og með 30.apríl 2021

Helstu breytingar varðandi grunnskóla:

 

  • Í grunnskólum verður heimilt að hafa 150 nemendur í hverju rými en líkt og áður eru nemendur í 1. til 10. bekk undanskildir reglum um fjarlægðarmörk og reglum um grímunotkun.

 

  • Regla um nándarmörk verður 1 metri í stað tveggja og gildir það jafnt milli nemenda og starfsfólks. Grímuskylda  ef ekki er unnt að virða 1 metra regluna. 

 

  • Foreldrum, aðstandendum og öðrum utanaðkomandi heimilt að koma inn í skólabyggingar, að uppfylltum reglum um sóttvarnir.

 

  • Viðburðir tengdir félagsstarfi í leik- grunn- og framhaldsskólum og í tónlistarskólum verða heimilir í skólabyggingum með þeim fjölda og nálægðartakmörkunum sem gilda á viðkomandi skólastigi.

 

  • Viðburðir þar sem gestir sitja:

Heimilt verður að halda viðburði í skólum í samræmi við almennar reglur um samkomutakmarkanir. 

 

Reglugerð