Í dag tók gildi ný reglugerð um takmörkun á skólahaldi. Gildir hún til og með 30.apríl 2021
Helstu breytingar varðandi grunnskóla:
- Í grunnskólum verður heimilt að hafa 150 nemendur í hverju rými en líkt og áður eru nemendur í 1. til 10. bekk undanskildir reglum um fjarlægðarmörk og reglum um grímunotkun.
- Regla um nándarmörk verður 1 metri í stað tveggja og gildir það jafnt milli nemenda og starfsfólks. Grímuskylda ef ekki er unnt að virða 1 metra regluna.
- Foreldrum, aðstandendum og öðrum utanaðkomandi heimilt að koma inn í skólabyggingar, að uppfylltum reglum um sóttvarnir.
- Viðburðir tengdir félagsstarfi í leik- grunn- og framhaldsskólum og í tónlistarskólum verða heimilir í skólabyggingum með þeim fjölda og nálægðartakmörkunum sem gilda á viðkomandi skólastigi.
- Viðburðir þar sem gestir sitja:
Heimilt verður að halda viðburði í skólum í samræmi við almennar reglur um samkomutakmarkanir.
Reglugerð