Helstu breytingar eru:
- Tveggja metra regla og grímuskylda verði afnumin í 5.-7. bekk. Áfram verði tveggja metra
regla og grímuskylda nemenda í 8.-10. bekk í samræmi við fyrri tillögur.
- Grímuskylda kennara vegna nálægðar við nemendur gildi gagnvart nemendum í 8.-10. bekk en ekki yngri nemendum (innskot skstj. nema að viðkomandi kennari fari á milli hópa).
- Reglur um blöndun, fjölda, grímunotkun og nálægð gildi ekki á útisvæðum leik- og
grunnskóla.
- Um fjölda í íþrótta- og tómstundastarfi fari eftir leik- og grunnskólareglunum, þ.e. hámark
- Íþrótta- og sundkennsla verður leyfð fyrir alla aldurshópa
Ekkert er fjallað um skólaakstur í þessari reglugerð og munu fyrri reglur um grímuskyldu allra gilda áfram.
Unnið er að uppfærslu aðgerðaráætlunar og verður hún birt á heimasíðu skólans þegar þeirri vinnu er lokið.
Minnum á almennar reglur um smitgát og sóttvarnir.
Skólastjóri