Evrópski skólaíþróttadagurinn

European School Sport Day – Be Active Together🏃‍♀️🏃‍♂️

Föstudaginn 25. september tók Kirkjubæjarskóli á Síðu þátt í Evrópska skólaíþróttadeginum (ESSD).

Vegna slæms veðurs fór dagskráin fram í íþróttahúsinu þar sem nemendur tóku þátt í skemmtilegum hreyfi- og samvinnuverkefnum. Meðal annars fóru þeir í Íþróttaeyjar og Fjögur íþróttahorn, þar sem reyndi á samvinnu, hreyfingu og þekkingu á mismunandi íþróttagreinum.

Það var mikil hreyfing, góð samvinna og frábær stemning í íþróttahúsinu! 💪😊