Gjafir til skólans.

Við setningarathöfn Uppskeruhátíðar Skaftárhrepps þann 15. október síðastliðinn var Kirkjubæjaraskóla afhentar tvær dásamlegar gjafir sem eiga vonandi eftir að gleða nemendur okkar.

Nemendafélagið Askur við Kirkjubæjarskóla fékk afhent gjafabréf frá Kvenfélaginu Hvöt að upphæð 300.000 kr. til kaupa á billjardborði.

Leikskóladeild Kirkjubæjarskóla fékk afhent gjafabréf frá Kvenfélagi Kirkjubæjarhrepps að upphæð 250.000 kr. til kaupa á fjórum hjólum til útileiks.

Við erum afar þakklát fyrir þennan mikla velvilja, hlýju og dýrmæta stuðning sem kvenfélögin sýna starfi með börnum og ungmennum í samfélaginu okkar!