Haustferðalag

Haustferðin verður farin á morgun þriðjudaginn  4. september og er förinni heitið í þetta sinn inn að Eldgjá. Landvörður mun taka á móti hópnum og leiða göngu inn að Ófærufossi. Lagt verður af stað frá skólanum kl. 9:00 og er áætluð heimkoma um 15:30 - 16:00

Veðurspá er þokkaleg fyrir morgundaginn en við minnum nemendur á að koma með hlýjan klæðnað og góða skó til göngu.