Við Núpsstað tók Filippus frá Hvoli á móti okkur og hleypti okkur upp að bænum og bænhúsinu. Þar áðum við í yndislegu umhverfi umkringdum dröngum sem tóku á sig mynd trölla og drauga.
Næsta stopp var Skaftafell. Þar skiptum við krökkunum í tvo hópa. 5. – 10. bekkur gengu upp að Svartafossi á með 1. – 4. bekkur gengu inn að Skaftafellsjökli. Endalaust er hægt að skoða á þessum gönguleiðum og alltaf eitthvað nýtt að sjá þó sumir hafi verið að fara þarna í tíundaskiptið. Veðrið lék áfram við okkur, ef eitthvað er þá var í það heitasta.
Við borðuð hádegismat við minnirvarðann um hlaupið úr Gjálp 1996.
Áður en við komum aftur á Kirkjubæjarsklaustur borðum við síðdegishressingu við Prestbakkakirkju.