Höfðingleg gjöf

Síðast liðinn miðvikudag var Kirkjubæjarskóla færð höfðingleg gjöf.  Sólrún Ólafsdóttir færði þá skólanum gjöf,  fullkomna myndbandstökuvél.

Sólrún Ólafsdóttir sem varð sjötug í lok febrúar og hélt upp á afmælið 3. mars afþakkaði allar gjafir en hvatti gesti til að gefa í sjóð til styrktar kaupum á videomyndavél fyrir skólann.

Svo vel gekk söfnunin að ráðist var í það strax að panta vélina og fengum við frábærar viðtökur hjá Origo sem gaf með búnað með vélinni.

Og 14. mars afhenti Sólrún með barnabörnum sínum vélina með öllu tilheyrandi.

Fyrirhönd Kirkjubæjarskóla vil ég þakka Sólrúnu kærlega fyrir hlýhug til skólans og ég veit að tækið á eftir að koma að góðum notum við nám og kennslu.