Kirkjubæjarskóli innleiðir kennsluhætti Íslenskuskólans
Kennarar frá Kirkjubæjarskóla hafa sótt námskeið um kennsluhætti Íslenskuskólans og hafið innleiðingu þeirra í skólanum. Markmiðið er að efla markvissa orðaforðakennslu í íslensku fyrir nemendur sem læra íslensku sem annað tungumál.
Íslenskuskólinn afhenti Kirkjubæjarskóla sérstaka Íslenskuskólamöppu sem inniheldur myndræn orðaforðaspjöld, fjölbreytt kennsluefni og kennsluleiðbeiningar fyrir kennara. Efnið styður við orðaforðakennslu þar sem lögð er áhersla á endurtekningu orða, samræður, málfræði, ritun og virkni nemenda til að festa orðaforða í minni. Markmiðið með Íslenskuskólanum er að nemendur bæti námsárangur sinn í öðrum námsgreinum með auknum orðaforða.
Með innleiðingunni tekur Kirkjubæjarskóli mikilvægt skref í að styrkja íslenskukunnáttu barna með íslensku sem annað tungumál.