Í dag var gengið til kosninga í nemendaráð Kirkjubæjarskóla. Framboð voru glæsileg og stóðu nemendur sig vel í framboðsræðum og framsetningu á máli sínu. Við viljum þakka þeim fyrir sitt framlag. Í ráðið er skipað með eftirfarandi hætti:
Formaður er Kristófer Gunnar Bjarkason 10. bekk.
Ritari er Gabríel Fannar Unason 10.bekk.
Gjaldkeri er Pétur Yngvi Davíðsson 9. bekk.
Meðstjórnandi 1 er Kristall Máni Gunnarsson 9. bekk.
Meðstjórnandi 2 er Stefanía Guðrún Jónsdóttir 7. bekk.
Við óskum þeim öllum til hamingju með kosninguna og hlökkum til samstarfsins í vetur.