Lausar stöður við Kirkjubæjarskóla!
Kirkjubæjarskóli á Síðu óskar eftir að ráða stuðningsfulltrúa. Þarf að geta hafið störf sem fyrst. Um er að ræða tvær 50% stöður eða eina 100% stöðu. Stuðningsfulltrúi er kennara til aðstoðar við að sinna einum og/eða fleiri nemendum sem þurfa sérstaka aðstoð. Starfið miðar fyrst og fremst að því að auka færni og sjálfstæði nemenda, félags-og námslega sem og í daglegum athöfnum.
Einnig eru laus staða skólaliða, starfshlutfall 80-100% eða eftir samkomulagi. Skólaliði tekur þátt í uppeldisstarfi og öðrum störfum innan skólans. Megin áhersla er lögð á velferð og vellíðan nemenda. Skólaliði sér m.a. um að halda húsnæði og skólalóð hreinni.
Ráðið er í stöðurnar á ársgrundvelli, þ.e. starfstímabil nær yfir allt árið.
Menntun og hæfniskröfur
- Kostur að hafa lokið námi sem stuðningsfulltrúi/skólaliði
- Hafa reynslu af störfum með börnum
- Færni í samskiptum, lipurð, sveigjanleika og jákvæðni.
- Flekklaus starfsferill og hreint sakavottorð
Launkjör fara eftir samningum Sambands ísl. sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Umsóknir skal senda á netfangið skolastjori@klaustur.is sem og fyrirspurnir um starfið.
Með umsókn skal fylgja ferilskrá, meðmælendur og sakavottorð.