Lausar stöður við Kirkjubæjarskóla 2021-2022 -UMSÓKNARFRESTUR FRAMLENGDUR TIL 16.ARPÍL

Um er að ræða stöður kennara á yngsta stigi  og miðstigi.

Leitað er eftir kennurum sem geta tekið að sér almenna bekkjarkennslu auk kennslu í  stærðfræði og náttúrugreinum á mið- og efsta stigi.

Einnig er laus staða  kennara í hönnun og smíði.  Um hlutastarf er að ræða.

Leitað er eftir áhugasömum og metnaðarfullum einstaklingum sem eru tilbúnir að vinna eftir einkunnarorðum skólans, Kærleikur, bjartsýni og samvinna.

Kennsluréttindi, hæfni í mannlegum samskiptum og flekklaus starfsferill er áskilinn.

Laun og starfskjör fara eftir kjarasamningi KÍ og Sambands ísl. sveitarfélaga.

Nánari upplýsingar um störfin gefur skólastjóri, Katrín Gunnarsdóttir í síma 487-4633 / 865-7440.

Umsóknir ásamt ferilskrá, uppl. um meðmælendur og sakavottorði skal senda til skólastjóra á netfangið

skolastjori@klaustur.is

Umsóknarfrestur er til og með 26.mars 2021.