Litlu jólin og jólafrí

Jólaklukkur klingja..
Jólaklukkur klingja..

Nemendur og starfsfólk Kirkjubæjarskóla héldu í jólafrí í gær eftir að hafa átt góða stund saman. Dansað var í kringum jólatré og sungnir jólasöngvar.  Síðan var sest að borðum, hátíðarmatur snæddur og jólasveinar kíktu í heimsókn.  Nemendur fóru síðan í kennslustofur sínar með umsjónarkennara, skiptust á gjöfum og skemmtu sér saman.  Áður en haldið var inn í jólin söfnuðust nemendur og starfsfólk saman við jólatréð, hlýddu á jólaguðspjallið og sungu sálminn helga, Heims um ból.  

Fyrsti skóladagur á nýju ári er mánudagurinn 7. janúar og er mæting skv. stundaskrá.

Megi þið öll, nemendur, starfsfólk og fjölskyldur ykkar eiga friðsæla jólahátíð, þakka ánægjulegt samstarf á líðandi ári og hlakka til að hitta ykkur á nýju ári.

Jólakveðjur

Skólastjóri