Innritun nýrra nemenda í Kirkjubæjarskóla skólaárið 2023-2024 er hafin.
Innritun er rafræn og nálgast má skráningarform hér
Í byrjun ágúst fá nemendur bréf frá skólanum þar sem þeim ásamt foreldrum/forráðamönnum er boðið á kynningu með umsjónarkennara og skólastjóra. Þar eru m.a. farið yfir skipuag kennslu, stundaskrá, skráningar í Infomentor, stoðþjónustu sem í boði er og annað sem snýr að skólagöngu nemenda. Í lokin munu nemendur og foreldrar fá leiðsögn um skólahúsnæðið og þeim kynntar aðstæður.
Ef nánari upplýsinga óskast er velkomið að senda tölvupóst á netfangið: skolastjori@klaustur.is
Hvetjum foreldra til að skrá börn sín sem fyrst til að auðvelda allt skipulag og undirbúning.