Nemendur 3. og 4. bekkjar skreyttu innkaupakerrur í Kjarval

Nemendur 3. og 4. bekkjar teiknuðu og lituðu flottar jólasveinamyndir sem þau festu á innkaupakerrurnar í Kjarval. Krakkarnir skrifuðu nöfn jólasveinanna á íslensku og ensku, því auðvita eiga erlendu ferðamennirnir líka að vita hvað sveinkarnir heita. Siggi verslunarstjóri var hæstánægður með heimsóknina og framtakið og fékk að vera með á myndinni.