Norræna skólahlaupið 2017

Í dag tóku nemendur og starfsmenn skólans þátt í Norræna skólahlaupinu.  Katarzyne íþróttakennari hafði merkt hlaupaleið inn að Geirlandi þar sem hægt var að velja um þrjár vegalengdir, 2,5 km, 5 km og 10 km.  Yngstu nemendurnir hlupu 2,5km en aðrir gátu valið um 5 eða 10 km.  Hlaupið tókst mjög vel, veðrið var yndislegt og hlaupaleiðin falleg. Allir hlupu eins og þeir gátu og höfðu gaman af.