Skólahald skerðist vegna veðurs

Komið þið sæl, 


Skólahald mun að öllum líkindum skerðast í dag vegna veðurs og fyrirhugaðrar lokunar á þjóðvegi 1 frá klukkan 12:00 á hádegi í dag. Skólabílar keyra því fyrr heim í dag. Foreldrar eru beðnir um að láta skólabílstjóra og skóla vita ef börn þeirra komi ekki í skólann í dag vegna veðurs.


kær kveðja Skólastjórnendur.