Vorhátíð

Þann dag sameinast nemendur og starfsmenn í leikjum og hafa gaman saman.  Mæting er á hefðbundum tíma og hefst hátíðin kl. 8.40.

Hjólaskoðun ( minnum foreldra á að láta skólabílstjóra vita ef hjól verða með í för ) og hjólabrautin verður á sínum stað ásamt, bandí, krokket og brennó svo eitthvað sé nefnt.

Deginum lýkur svo með grilli og gleði um kl. 12:30 og skóladegi lýkur kl. 13.00.

Áður en nemendur halda heim býður  Ungmennafélagsið  Ármann öllum nemendum Kirkjubæjarskóla  að halda áfram í sprelli og gleði  sem hefst kl. 13 og stendur til kl 14.00.

Skólabílar halda síðan heim á leið frá skóla kl. 14.05

Sjáums öll hress og kát mánudaginn !