Vorhátíð Kirkjubæjarskóla

Vorhátíð grunnskóladeildar verður haldin þriðjudaginn 2. júní frá kl. 09:00 til 13:00. Á dagskrá eru fjölbreyttir leikir, þrautabrautir og hjólaskoðun lögreglu.

Foreldrum og forráðamönnum er boðið að koma í hádeginu og gæða sér á hamborgurum með nemendum. Við hlökkum til að eiga ánægjulega samverustund með ykkur öllum.